Framleiðsla á ostum hófst nú í Mars. Fyrsti osturinn ber heitið Grikki og er nokkurskonar snakkostur. Hentar vel sem meðlæti, í salatið eða bara einn og sér meðan horft er á Desperate housewifes.
Grikki er í olíu og fáanlegur annað hvort með kryddi eða sólþurrkuðum tómötum og ólífum.
Verið er að þróa annan ost og verður hann tilkynntur þegar þar að kemur.
Þá verður einnig framleitt úr sauða og geita mjólk, sé sú mjólk á boði. Endilega hvetjið ættingja og vini sem eiga geitur og ær, til að mjólka þær og selja okkur mjólkina.