Kjaftæði er rjómaís sem við búum til á bænum.  Ísinn er framleiddur í nokkrum bragðtegundum s.s. súkkulaði, karamellu, piparmyntu, lakkrís, toffie, tiramisu, amaretto, bláberja, vanillu, pistaciu ofl.  Einnig framleiðum við sorbet, sem er vatnsís og fæst með banana/orange og  jarðarberja bragði.  Sykurlaus ís er einnig í boði með súkkulaði, pistasíu og nuggati.

haustið 2009 hófum við framleiðslu á aðalbláberjaís og hefur hann fengið fádæma góðar viðtökur, enda hér um einstaka vöru að ræða.

Ísinn er framleiddur úr mjólk og rjóma ( 40% ), sykri, eggjarauðum og bragðefnum.  Ferskir ávextir og ber eru notuð í þær bragðtegundir sem innihalda slíkt bragð.  Enginn e-efni eru í ísnum.  Mjólkin og rjóminn eru úr kúnum okkar á Erpsstöðum.  Eggjarauðurnar frá Nesbú, sykur og bragðefni koma að mestuleyti erlendis frá.

Ísinn er gerilsneyddur.  Það ferli fer fram í ísgerðarvélinni en vélin byrjar á því að hita ísblönduna í 84 gráður áður en blandan er þeytt saman.

Umbúðirnar eru 180 ml, 500 ml, l líters 2,5 liters og 4 líters ( fyrir veitingahús)

Ef ykkur langar til að panta ís í einhverju magni þá er best að gera það með minnst 7-10 daga fyrirvara.  Flutning á ísnum leysum við hverju sinni.  Oftast notfærum við okkur vini og ættingja sem eru á faraldsfæti.

Um páksana verður opið frá föstudegi 26. mars til 5. apríl, alla dagana frá kl 13-17.  Ef þið eruð á ferðinni á öðrum tímum verið ófeimin við að hafa samband og við opnum fyrir ykkur.  Eigum flestar bragðtegundir í hálfum og heilum líter.

NÝTT,,,,,,,,,,,ROMMRÚSÍNU ÍS.    OG SVO EINNIG BAILEYSÍS   HMM NAMMM