Þann 1. janúar 2010 tók Rjómabúið Erpsstaðir formlega til starfa.  Þar er framleiddur rjómaísinn KJAFTÆÐI ásamt skyri, ( þessu gamla góða ) og ostum. 

bragðtegundir af ísnum eru fjölmargar en mesta lukku hefur þó vakið bláberjaísinn okkar, sem er rjómaís með Íslenskum Aðalbláberjum.  Skyrið er hreint og óhrært og hentar einstaklega vel í eftirrétti af ýmsu tagi.  Grikki, nefnist sá ostur sem við bjóðum nú og er hann hugsaður sem meðlæti með mat, salati eða bara beint í gogginn, og þá er hægt að neyta hans án annars meðlætis.  Einkar ljúffengur snakkbiti.  Sérpantanir eru okkur huglleiknar og reynum við ávalt að bregðast við þeim.  Ístertur eru einungis fáanlegaréftir sérpöntun.

Nú þegar höfum við framleitt ístertur fyrir fermingar, skýrnir og afmæli.  Allt að þínum óskum og í því magni sem þú óskar.

Kynntu þér vöruflokkana á undirflipunum hér að ofan.

Hægt er að versla ísinn beint frá býlinu, annað hvort með heimsókn eða netpöntun á netfangið erpur@simnet.is .  Frá 5. júní verður opið alla daga frá kl 13 til 17 og á öðrum tímum eftir samkomulagi.

Ísinn, skyrið og ostinn er einnig hægt að versla hjá Frú Laugu á Laugalæknum, www.frulauga.is en það er bændamarkaður staðsettur rétt við sundlaugarnar í Laugardal.

einnig er hægt að fá skyrið og ostinn í Íslandi, ísbúðinni í Suðurveri.