16. október

Veðurlýsingar falla niður í vetur.

21. ágúst

Eins og áður, ljómandi gott veður.  Þó farið að kólna, hiti 8 gráður.  Logn og sólskin.

13. ágúst

Sólarlaust, þurrt, logn og hiti 16 gráður um hádegi

11. ágúst

Bjart og hlýtt.  Logn og hiti 15 gráður um hádegi.

10. ágúst

Ljómandi gott veður.  Þurrt, sólskin og hlýtt, hiti að 14 gráðum.

26. júlí

Heldur hefur kólnað sl daga.  Gjóla var í dag, skýjað og sletti dropum endrum og sinnum.  Hiti fór þó í 11 gráður.

7. júlí

Þungbúið og þoka í morgun.  Létti til um hádegi.  Hiti að 24 gráðum og andvari.

5. júlí

Ringdi sl nótt, en hélst þurrt í dag.  Vindlaust framundir nón, er fór aðeins að blása.  Lægði aftur og sólin leit til okkar.  Hiti 22 gráður.

4 júlí.

Vindur undir morgunn.  Lægði og birti til e.h. með gífurlegum hitabylgjum.  Hiti í forsælu fór í 25 gráður.

3. júlí

Ágætis veður.  Kólnaði undir kvöld og sletti skúrum.  Hiti 11 gráður.