Hvað er til í kistunni?

Nú erum við búin að byrgja okkur upp af gómsætum rjómaís.  M.a. rommrúsinuís, bláberjaís (rjómaís með íslenskum aðalbláberjum), baileysís, mintuís með súkkulaðibitum og svo þessar venjulegu bragðtegundir eins og súkkulaði, vanilla, kókos, karamella.  Við munum einnig eiga fyrir jólin sykurlausan ís ( með súkkulaði bragði ) og svo jarðarberjasorbet sem er bæði mjólkur og eggjalaus.  Þannig að allir ís aðdáðendur ættu vonandi að geta verslað jólaísinn hjá okkur.

NÝTT,,,,,GJAFABRÉF Í JÓLAPAKKANN,,,

Nú höfum við útbúið jólalegt gjafabréf að verðmæti 4000,-  Hægt er að nálgast gjafabréfið hjá okkur, sendið bara tölvupóst á erpur@simnet.is  eða hringið heim í síma 4341357.

Það sem gjafabréfið inniheldur er frítt í fjósið á Erpsstöðum fyrir handahafa og fjölskyldu hans og 2 lítrar af Kjaft-æði,,,    Öðruvísi gjöf, sem öll fjölskyldan getur notið.  Að fá tilfinningu fyrir sveitalífinu, sjá kýr og kálfa í sínu náttúrulega umhverfi og fræðast m.a. hvernig verður mjólkin til!!

Verðum í Stykkishólmi föstudaginn 13.nóv

Næsta föstudag 13. nóvember verður Mjöður í Stykkishólmi með opið hús frá kl 17-19.  Þau hafa boðið okkur að koma og kynna ísinn góða.  Við ætlum að gefa smakk og verðum með nokkrar bragðtegundir með okkur til sölu.   Í dag gerðum við rjómaís með bjór og notuðum auðvitað til þess Jólabjórinn frá Stykkishólmi.  Ísinn lofar góðu og kemur hið mikla og góða bragð bjórsins greinilega fram í ísnum.

Sl fimmtudag vorum við með kynningu í Landnámssetrinu í Borgarnesi.  Það var virkilega vel heppnað kvöld hjá Landnámssetrinu, m.a. tískusýning frá verslunum í heimabyggð og kynningar á matvörum frá Vesturlandi.  Gaman er að fá að taka þátt í svona viðburðum.

30.okt síðasta opnunarhelgi í bili

Núna um helgina verður síðasta opnunarhelgin í bili.  Verðum með opið í desember en það verður auglýst síðar þegar dagsetningar liggja fyrir.  10 kýr búnar að bera á sl 10 dögum,  þannig að við erum bæði með fallegt ungviði og eins eigum við mikið magn af broddmjólk sem við seljum frosna í hálfslíters flöskum á kr. 300,-

Virkilega vel heppnuð dagskrá hjá sauðfjárbændum sl helgi.  Bestu þakkir fyrir þetta framtak kæru sveitungar, dagskráin  er alltaf að vinda uppá sig hjá þeim,  fjölbreyttari og stærri dagskrá hver ár.

Opið verður föstudaginn 23.okt

Opið verður föstudaginn 23. okt, laugardag 24. okt og sunnudag 25. okt frá kl 13-18.  Um helgina verður mikið húllumhæ hérna í nágrenninu í tilefni haustfagnaðar sauðfjárbænda.  Við vonumst til að margir komi og sæki Dalina heim.  Höfum því ákveðið að hafa opið á föstudeginum og aðeins lengur á lau og sun en vanalega.  Nóg verður til af bláberjaísnum vinsæla.  Góð hugmynd að taka með sér kælibox í Dalina og geta því á auðveldan hátt flutt jólaísinn heim í kistu.

16. október

Veðurlýsingar falla niður í vetur.

16. september, sumarið er búið,,,,,

Hvað tíminn líður hratt.  Nú er komið haust enn á ný og  fjölskyldan að komast í vetrargírinn.  Krakkarnir allir í skóla.  Frumburðurinn kominn í framhaldsskóla og litla daman á síðasta ári í leikskóla.  Og við foreldrarnir að byrja að þeysast með börnin í tómstundir…..

Sumarið er búið að vera ótrúlega annasamt.  Við höfum fengið gríðarlega mikið hrós fyrir ísinn og það að opna fjósið okkar fyrir þeim sem áhuga hafa á því.  Við erum full bjartsýni og mikið í pottunum.  Undirbúningur ostagerðarinnar  er í fullum gír.  Gólfefni loksins komið á gólfið í ostagerðinni og í móttökunni.  Við erum að sanka að okkur tækjum og tólum.  Og það besta er að við höfum fengið samstarfsaðila í ostagerðina þannig að við sjáum að eitthvað getur virkilega farið að gerast.

21. ágúst

Nú er tími bláberjanna í algleymi og höfum við framleitt ágætis rjómabláberja ís úr ferskum íslenskum ( vestfirskum ) bláberjum.

Um helgina verður opið eins og venja er laugardag og sunnudag frá kl 13 til 17. eða lengur ef veður leyfir.

farið varlega í umferðinni

11. ágúst

Nú eru andarungarnir orðnir þriggja vikna og enn fiðurlausir.  Höfum fengið handa þeim stórt kar sem við´létum vatn og eyju í og þeir fá að synda nokkrum sinnum á dag.  Þeir eru mjög ánægðir með þá þjónustu.

10. ágúst

Óskum eftir að kaupa bláber, fjallagrös, blóðberg og aðrar spennandi jurtir til að nota sem bragðefni í ísinn og ostana.