26. maí- lausar gistinætur í sumar

ef þið hafið áhuga á gistingu í Gamlabæ í sumar, kíkið þá á “lausir dagar”  undir flipanum - gisting-

5. maí Frumkvöðlar Vesturlands

Í dag veittu Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi okkur þann heiður að útnefna Erpsstaði frumkvöðul Vesturlands 2009.  Það er mikill heiður og hvatning fyrir okkur.  Áfram með smjörið!

1. maí í Perlunni

Í dag 1. maí tókum við þátt í sýningunni Íslandsperlur.  Stóðum í bás Bændasamtakanna og buðum upp á smakk á skyr og osti. Frábært að hitta allt þetta fólk og margir höfðu heyrt af því sem við erum að gera á Erpsstöðum og lístu ánægju sinni með það.  Þorgrímur, Ingvar og Gunnlaug voru í Perlunni og stóðu vaktina.

15.april Mýrareldar og sumardagurinn fyrsti

Ýmislegt er á döfinni.  Á laugardaginn 17. april verður vorhátiðin Mýrareldar haldin í Lyngbrekku.  Þorgrímur og Ingvar verða þar og kynna og selja ísinn góða, skyrið og ost.

Á sumardaginn fyrsta er svo stefnan tekin á Bifröst. Taka þátt í markaði þar.  Það verður spennandi að koma sér á framfæri við nágranna okkar á Bifröst en það er einungis um 30 km á milli Erpsstaða og Bifröst.

Svo erum við að skoða það að taka þátt í sýningu í Perlunni 1-2 maí.

24.03.2010,,Vöknuð af værum blundi,,,,

Þrátt fyrir að heimasíðunni hafi ekki verið sinnt á nýju ári þá erum við ekki af baki dottin.  Við erum að framleiða ís, - eigum alltaf eitthvað í kistunni.  Einnig er skyrið að verða ansi gott hjá okkur, ” Þetta gamla góða” og svo eru ostar í burðarliðnum.  Svo erum við alltaf til í að taka á móti hópum í fjósið. Ef rétt er reiknað þá erum við núna að byrja 5 árið sem við tökum á móti skólakrökkum frá ungmennabúðunum á Laugum.  Þar dvelja 9. bekkingar, sem eru héðan og þaðan af landinu, við leik og störf í eina skólaviku.  Að jafnaði er ferðadagur á fimmtudögum og þá koma krakkarnir til okkar, kíkja á kusurnar og smakka mjólk og ís.  Einnig fara þau í fjárhús á Stóra- Vatnshorni og í víkingaveröldina á Eiríksstöðum.

Frú Lauga

Nú er hægt að nálgast Kjaft-æði í Frú Laugu í Reykjavík.  Rommrúsínu og aðalbláberja, nammi namm.  Einnig er hægt að kaupa ísinn á sveitamarkaðnum Laxárbakka, þar eru í boði nokkrar bragðtegundir.  En skemmtilegast er auðvitað að kaupa ísinn “alveg”  beint frá býli ;=)  Maður þarf auðvitað að hafa fyrir því.  Vera ófeiminn við að biðja vini og vandamenn sem eru á faraldsfæti um þjóðveg 60 að kaupa fyrir sig.  Eða einfaldlega að nokkrir taki sig saman og sendi pöntun til okkar og við komum ísnum til ykkar.

9. desember, fæddir 7 hvolpar!

9. desember.
Í dag fæddust 7 hvolpar hjá týru, 5 hvuttar og 2, týkur.
Gotið gekk vel og fæddust þeir allir á 3 og hálfum tíma, frá kl 4 til 7:30.
 

Hvað er til í kistunni?

Nú erum við búin að byrgja okkur upp af gómsætum rjómaís.  M.a. rommrúsinuís, bláberjaís (rjómaís með íslenskum aðalbláberjum), baileysís, mintuís með súkkulaðibitum og svo þessar venjulegu bragðtegundir eins og súkkulaði, vanilla, kókos, karamella.  Við munum einnig eiga fyrir jólin sykurlausan ís ( með súkkulaði bragði ) og svo jarðarberjasorbet sem er bæði mjólkur og eggjalaus.  Þannig að allir ís aðdáðendur ættu vonandi að geta verslað jólaísinn hjá okkur.

NÝTT,,,,,GJAFABRÉF Í JÓLAPAKKANN,,,

Nú höfum við útbúið jólalegt gjafabréf að verðmæti 4000,-  Hægt er að nálgast gjafabréfið hjá okkur, sendið bara tölvupóst á erpur@simnet.is  eða hringið heim í síma 4341357.

Það sem gjafabréfið inniheldur er frítt í fjósið á Erpsstöðum fyrir handahafa og fjölskyldu hans og 2 lítrar af Kjaft-æði,,,    Öðruvísi gjöf, sem öll fjölskyldan getur notið.  Að fá tilfinningu fyrir sveitalífinu, sjá kýr og kálfa í sínu náttúrulega umhverfi og fræðast m.a. hvernig verður mjólkin til!!

Verðum í Stykkishólmi föstudaginn 13.nóv

Næsta föstudag 13. nóvember verður Mjöður í Stykkishólmi með opið hús frá kl 17-19.  Þau hafa boðið okkur að koma og kynna ísinn góða.  Við ætlum að gefa smakk og verðum með nokkrar bragðtegundir með okkur til sölu.   Í dag gerðum við rjómaís með bjór og notuðum auðvitað til þess Jólabjórinn frá Stykkishólmi.  Ísinn lofar góðu og kemur hið mikla og góða bragð bjórsins greinilega fram í ísnum.

Sl fimmtudag vorum við með kynningu í Landnámssetrinu í Borgarnesi.  Það var virkilega vel heppnað kvöld hjá Landnámssetrinu, m.a. tískusýning frá verslunum í heimabyggð og kynningar á matvörum frá Vesturlandi.  Gaman er að fá að taka þátt í svona viðburðum.