Um búið og ábúendur á Erpsstöðum
Ábúendur á Erpsstöðum eru í dag, Þorgrímur Einar Guðbjartsson, frá Kvennahóli á Fellsströnd, Dalasýslu og Helga Elínborg Guðmundsdóttir, frá Kvennabrekku í Miðdölum Dalasýslu.
Börn þeirra eru fimm, Guðbjört Lóa og Gunnlaug Birta. Drengirnir, Guðmundur Kári og Einar Björn og litla daman, Hólmfríður Tania.
Búskap er í dag þannig fyrirkomið að rekið er kúabú, með um 60 mjólkurkúm auk geldneyta, alls um 150 gripir.
Sauðfjárbúskapur lagðist af um 2000, en haustið 2008 fengum við okkur 7 kindur.
Hesta eign er einnig 7 hross á öllum aldri. Eru flest tamin og notuð af börnunum og unglingunum til leiks á vorin og sumrin.
Þá eru á bænum 3 kettir, ein kanína, 3 naggrísir og síðast en ekki síst þau skötuhjú, Týra og Spott, hundarnir okkar. Týra er af erlendur bergi brotin en Spott er hreinræktaður Íslenskur fjárhundur, þó hann sé nú ekki mikið að monta sig af gáfum sínum í þeim efnum.
Haustið 2006 tókum við hjónin þá ákvörðun að byggja upp búið á Erpsstöðum. Eins og margir vita þá er nútímabúskapur orðin mun auðveldari en fyrir um aldarfjórðungi, bæði hvað varðar gífurlegar framfarir í mjaltatækni og heyverkun, þannig að til þess að geta tekið þátt í þeirri framþróunn, þá var fátt annað hægt að gera, ef við ætluðum okkur á annað borð að fylgja með þróununni.
Vorið 2007 hófust síðan framkvæmdir og var þeim að mestu lokið haustið 2008 þegar kýrnar okkar fluttu í hið nýja fjós.
Nýja fjósið er ætlað um 80 kúm, þar af um 60 mjólkandi, auk aðstöðu fyrir litlukálfana, meðan þeir fá mjólk. Að auki er í nýja fjósinu um 200m2 aðstaða, ætluð fyrir heimavinnslu afurða.
Það er einmitt heimavinnslan sem vóg mest þagar við ákváðum að fara af stað í þessa vegferð.
Þorgrímur er mjólkurfræðingur að mennt og hefur unnið í MS Búðardal við framleiðslu á ostum og sýrðum vörum.
Hugmynd okkar byggir á því að framleiða skyr, osta og ís á bænum og selja beint til neytenda. Auk þess höfum við komið upp lítilli gesta mótttöku, þar sem gestir búsins geta fræðst um landbúnað og lifnaðarhætti í sveitinni.