24.03.2010,,Vöknuð af værum blundi,,,,
Þrátt fyrir að heimasíðunni hafi ekki verið sinnt á nýju ári þá erum við ekki af baki dottin. Við erum að framleiða ís, - eigum alltaf eitthvað í kistunni. Einnig er skyrið að verða ansi gott hjá okkur, ” Þetta gamla góða” og svo eru ostar í burðarliðnum. Svo erum við alltaf til í að taka á móti hópum í fjósið. Ef rétt er reiknað þá erum við núna að byrja 5 árið sem við tökum á móti skólakrökkum frá ungmennabúðunum á Laugum. Þar dvelja 9. bekkingar, sem eru héðan og þaðan af landinu, við leik og störf í eina skólaviku. Að jafnaði er ferðadagur á fimmtudögum og þá koma krakkarnir til okkar, kíkja á kusurnar og smakka mjólk og ís. Einnig fara þau í fjárhús á Stóra- Vatnshorni og í víkingaveröldina á Eiríksstöðum.