Frú Lauga
Nú er hægt að nálgast Kjaft-æði í Frú Laugu í Reykjavík. Rommrúsínu og aðalbláberja, nammi namm. Einnig er hægt að kaupa ísinn á sveitamarkaðnum Laxárbakka, þar eru í boði nokkrar bragðtegundir. En skemmtilegast er auðvitað að kaupa ísinn “alveg” beint frá býli ;=) Maður þarf auðvitað að hafa fyrir því. Vera ófeiminn við að biðja vini og vandamenn sem eru á faraldsfæti um þjóðveg 60 að kaupa fyrir sig. Eða einfaldlega að nokkrir taki sig saman og sendi pöntun til okkar og við komum ísnum til ykkar.