Hvað er til í kistunni?
Nú erum við búin að byrgja okkur upp af gómsætum rjómaís. M.a. rommrúsinuís, bláberjaís (rjómaís með íslenskum aðalbláberjum), baileysís, mintuís með súkkulaðibitum og svo þessar venjulegu bragðtegundir eins og súkkulaði, vanilla, kókos, karamella. Við munum einnig eiga fyrir jólin sykurlausan ís ( með súkkulaði bragði ) og svo jarðarberjasorbet sem er bæði mjólkur og eggjalaus. Þannig að allir ís aðdáðendur ættu vonandi að geta verslað jólaísinn hjá okkur.