Verðum í Stykkishólmi föstudaginn 13.nóv
Næsta föstudag 13. nóvember verður Mjöður í Stykkishólmi með opið hús frá kl 17-19. Þau hafa boðið okkur að koma og kynna ísinn góða. Við ætlum að gefa smakk og verðum með nokkrar bragðtegundir með okkur til sölu. Í dag gerðum við rjómaís með bjór og notuðum auðvitað til þess Jólabjórinn frá Stykkishólmi. Ísinn lofar góðu og kemur hið mikla og góða bragð bjórsins greinilega fram í ísnum.
Sl fimmtudag vorum við með kynningu í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Það var virkilega vel heppnað kvöld hjá Landnámssetrinu, m.a. tískusýning frá verslunum í heimabyggð og kynningar á matvörum frá Vesturlandi. Gaman er að fá að taka þátt í svona viðburðum.